Sérfræðingar í mannauðslausnum sveitafélaga
Sveitafélögin sigra flókin mannauðsmál
Fjölmargar lausnir í Kjarna hafa verið þróaðar í góðu samstarfi við sveitarfélög og með þau sérstaklega í huga. Ráðgjafar okkar hafa þekkingu og reynslu úr opinberri stjórnsýslu og skilja þarfir sveitafélaga. Þannig hefur hlotist bæði umhverfislegur og fjárhagslegur ábati af innleiðingu Kjarna hjá sveitafélögum.

Hjá Origo starfa ráðgjafar með góða reynslu af mannauðs- og launamálum hjá sveitarfélögum. Fyrir utan að hafa komið að ráðgjöf til sveitarfélaga á þessu sviði um langt skeið þá hafa þó nokkrir af okkar ráðgjöfum sjálfir verið starfsmenn í mannauðs- og launadeildum hjá sveitarfélögum áður en þeir gengu til liðs við Origo.
Sú innsýn sem þeir hafa inn í flókið umhverfi opinberrar stjórnsýslu er mjög dýrmæt þegar kemur að því að skilja þarfir sveitarfélaga sem taka ákvörðun um að innleiða Kjarna sem sitt mannauðs- og launakerfi. Ráðgjafar okkar hafa samanlagt starfað hjá sveitafélögum í yfir 60 ár. Einnig höfum við þjónustað mannauðs- og launakerfi sveitarfélaga í yfir 30 ár.

Betri lausnir fyrir meiri kröfur
Þekking og reynsla okkar ráðgjafa úr opinberri stjórnsýslu nýtist mjög vel þegar verið er að innleiða nýtt kerfi og ekki síður þegar kemur að því að þjónusta notendur og leiðbeina varðandi þá möguleika sem kerfið hefur upp á að bjóða. Að auki er tekið mikið tillit til sveitarfélaga og opinberra aðila þegar verið er þróa ýmsa virkni í kerfinu og kemur þá okkar þekking og gott samband við viðskiptavini að góðum notum.
Þróun í samstarfi við sveitarfélög
Fjölmargar lausnir í Kjarna hafa verið þróaðar í góðu samstarfi við sveitarfélög og með þau sérstaklega í huga. Má þar nefna tengingu við kerfi sem halda utan um starfsfólk vinnuskóla, þ.e. Kríu og Völu, tenging við Gagnalón Sambands íslenskra sveitarfélaga, tenging við Vinnustund og fjölmargar aðrar tengingar við önnur kerfi eru til staðar í Kjarna.

Sara Hlín Jónsdóttir, ráðgjafi í Kjarnateymi, sérfræðingur í mannauðs og launalausnum sveitafélaga.
Áður: Verkefnastjóri bakvinnslu launadeildar og staðgengill forstöðumanns hjá Akureyrarbæ.
Lausnir fyrir flóknari launavinnslu
Opinberir aðilar vinna eftir kjarasamningum og mikilvægt að launa- og mannauðskerfið geti stutt við það.
Það sem hefur nýst sveitarfélögum vel í kerfinu er hvernig hægt er að skrá sundurliðun á persónuálagi og auka launaflokka vegna menntunar, fag- og starfsaldurs. Hægt er að birta persónuálagið, sundurliðað eða sem samtölu, á launaseðli starfsmanna en einnig er hægt að skoða heildarskráningu sundurliðaða í skýrslum.
Í kerfinu er hægt að stilla fag- og starfsaldurshækkanir niður á hverja launatöflu. Með einfaldri aðgerð skilar kerfið tillögu að hækkunum sem launafulltrúi samþykkir eða hafnar.
Í kerfinu er hægt að stilla fag- og starfsaldurshækkanir niður á hverja launatöflu. Með einfaldri aðgerð skilar kerfið tillögu að hækkunum sem launafulltrúi samþykkir eða hafnar.
Útreikningar fyrir starfsfólk á fleiri en einum kjarsamningi
Algengt er að starfsmenn sinni fleiru en einu starfi hjá sveitarfélögum. Í Kjarna er hægt að reikna laun út frá ólíkum forsendum fyrir hvert starf, t.d. ef starfsmaður fær greitt samkvæmt tveimur kjarasamningum. Á launaseðlinum birtist launaútreikningur fyrir hvert starf.

Jóhanna Bára Þórisdóttir, ráðgjafi í Kjarnateymi, sérfræðingur í mannauðs og launalausnum sveitafélaga.
Áður: Forstöðumaður launadeildar Akureyrarbæjar.
Einfaldur og notendavænn innlestur á gögnum til launavinnslu
Kjarni getur tengst ýmsum öðrum kerfum viðskiptavina, s.s. tímaskráningarkerfum, bókhaldskerfum og Active Directory. Hægt er að virkja ýmsar vefþjónustur auk þess sem hægt er að útbúa séraðlagaðar vefþjónustur fyrir viðskiptavini, sé þess óskað.
Innlestur á gögnum er þægilegur, til dæmis ef greiða þarf tilfallandi greiðslur til starfsmanna eins og eingreiðslur eða önnur laun. Einnig er hægt að lesa inn frádráttarliði eins og kostnað vegna árshátíðar og þess háttar.
Einfaldar leiðréttingar
Með einföldum hætti er hægt að gera launaleiðréttingu aftur í tímann, hvort heldur sem er vegna persónubundinna launahækkana eða þegar breytingar verða á kjarasamningum.

Þorgerður Guðný Guðmundsdóttir, vörustjóri launahluta Kjarna.
Áður: Deildarstjóri launadeildar Grindarvíkurbæjar.
Betri yfirsýn
Í Kjarna er hægt að taka út fjölbreyttar skýrslur yfir launagreiðslur, launþega, fjarvistarskráningar, veikindi og fleira. Staðlaðar skýrslur fylgja með kerfinu en einnig getur hver notandi sett upp sínar skýrslur og stillt af eins og hentar.
Með Kjarnavef fá stjórnendur tæki til að skoða gögn um sína starfsemi. Þar geta þeir unnið launaáætlun fyrir sínar deildir út frá kostnaði og stöðugildum, samþykkt laun og einnig er hægt að bera saman rauntölur við áætlaðan launakostnað, sem er sérstaklega mikilvægt þegar vinna þarf innan ákveðins fjárhagslegs ramma.

Viðskiptagreind Kjarna
Með Power BI tengingu fá stjórnendur aðgang að rauntímagögnum um mannauðinn á einfaldan hátt. Lausnin býður upp á sérsniðnar skýrslur eftir þörfum hvers og eins.

Kjarni telur fleiri kerfishluta sem geta nýst sveitarfélögum eins og öðrum viðskiptavinum, svo sem fræðslu, ráðningar, frammistöðumat, gátlista, dagpeninga, viðveru og mötuneyti.
Lestu meira um árangur sveitafélaga með Kjarna
Skýrsla KPMG sýnir fram á umhverfislegan og fjárhagslegan ábata af innleiðingu mannauðs- og launakerfi Kjarna.
